Nýjar myndir 6. febrúar 2011 - í desember albúmi og janúaralbúmi!

vefdagbók uppfærð: 31. janúar 2011

kátar





Margrét Ýr fæddist þann 19.febrúar árið 2005. Á fæðingardeild landspítalans í Reykjavík, klukkan 16:26. Hún var 13 merkur (3220gr) og 51,5 cm við fæðingu. Margrét fæddist með voða mikið dökkt og þétt hár og dökk augu, síðan urðu þau blá. Hárið fór aldrei neitt og í dag er hún með mikið ljósleitt hár.

Við systur erum á leikskólanum Maríuborg, þar er gott að vera :)

koss




Íris Brynja fæddist þann 19. október 2007. Á Hreiðri Landspítalans í Reykjavík, klukkan 05:19. Hún var 14 og 1/2 mörk (3660) og 54 cm við fæðingu. Íris var með mikið hár en ekki alveg jafn mikið og Margrét, augun hennar voru dökk grá, hárið mjög ljóst og í dag eru augun blá og hárið ljós/hunangslitað. Mömmu og pabba þykir hún minna svolítið á Margréti þegar hún var nýfædd - bara aðeins öðruvísi ;)

Mamma okkar heitir Sirrý og pabbi okkar heitir Brynjar.
Við eigum líka afa og ömmur, frændur og frænkur og stóran frændsystkinahóp.


ÞAÐ LÆRA BÖRN SEM ÞAU BÚA VIÐ

Það barn sem býr við hnjóð, lærir að fordæma.

Það barn sem býr við hörku, lærir fólsku.

Það barn sem býr við aðhlátur, lærir einurðarleysi.

Það barn sem býr við ásakanir, lærir sektarkennd.

Það barn sem býr við mildi, lærir þolgæði.

Það barn sem býr við örvun, lærir sjálfstraust.

Það barn sem býr við hrós, lærir að viðurkenna.

Það barn sem býr við réttlæti, lærir sanngirni.

Það barn sem býr við öryggi, lærir kjark.

Það barn sem býr við skilning, lærir að una sínu.

Það barn sem býr við alúð og vináttu, lærir að elska.